SORPA hefur hafið brennslu á hauggasi í nýjum kyndli á urðunarstaðnum í Álfsnesi í samstarfi við ReSource International. Kyndillinn tekur við gasi sem hingað til hefur ekki verið hægt að nýta í gashreinsun vegna gæða þess. Við brennsluna breytist metan í koltvísýring og vatnsgufu sem hefur mun minni gróðurhúsaáhrif en metan sem sleppur óbrennt út í andrúmsloftið.

Um kyndilinn

Kyndillinn er smíðaður af breska fyrirtækinu Landfill Systems, sem sérhæfir sig í búnaði til meðhöndlunar á hauggasi. Hann var settur upp í Álfsnesi og tekinn í notkun núna í október 2026.

 

Hlutverk ReSource International

ReSource International hefur stýrt verkefninu fyrir hönd SORPU, allt frá vali og innkaupum á kyndlinum til undirbúnings uppsetningar. Teymi ReSource sá um samskipti við framleiðandann og fylgdi smíðinni eftir.

Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við starfsfólk SORPU, sem sá um verklegan undirbúning og tæknilega útfærslu á staðnum. Samhliða er lagður grunnur að reglulegum gasmælingum, svo betri yfirsýn fáist yfir gasmyndun á svæðinu.

Nýr hauggaskyndill á urðunarstað Sorpu á Álfsnesi

Frá vinstri: Halldór Kjartansson verkstjóri gashreinsunar hjá Sorpu, Nick Palmer, framkvæmdastjóri Landfill Systems, og Viðar Ásgeirsson, framleiðslustjóri gashreinsunar hjá SORPU við nýja kyndilinn í Álfsnesi.

Ávinningur fyrir umhverfið

Metan er margfalt öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur. Þegar hauggas er brennt í kyndli í stað þess að sleppa út í andrúmsloftið dregur verulega úr loftslagsáhrifum urðunarstaðarins. Kyndillinn dregur einnig úr lyktarmengun og eykur öryggi á svæðinu.

Verkefnið er liður í áframhaldandi samstarfi ReSource og SORPU um að lágmarka umhverfisáhrif á Álfsnesi.

„Með þessu getum við meðhöndlað stærri hluta þess hauggass sem myndast á urðunarstaðnum. Þetta er mikilvæg viðbót við áframhaldandi vinnu SORPU við að draga úr umhverfisáhrifum urðunar. Takk fyrir gott samstarf, ReSource!“

— Torfi Jóhannsson, deildarstjóri móttöku og flokkunar hjá SORPU