Umfangsmikið sýnatökuverkefni fyrir Veitur

ReSource International sinnir umfangsmesta umhverfisverkefni fyrirtækisins til þessa en það verkefni snýr að sýnatökum og greiningum í fráveitu fyrir Veitur ohf.

Verkefnið markar mikilvægt skref í að efla vöktun, gagnasöfnun og vísindalega greiningu á fráveitu á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum.

Samkvæmt útboðsgögnum Veitna felur samningurinn í sér reglubundna sýnatöku og greiningu á:

  • Frárennslisvatni fyrir og eftir hreinsun

  • Örverum í viðtökum (sjó- og ferskvatn)

  • Ólífrænum snefilefnum

  • Yfirborðsvirkum efnum, olíu og fitu

  • Örmengunarvöldum (Flokkur I og II samkvæmt nýrri Evróputilskipun)

Sýnataka á fráveitu fer fram á öllum helstu hreinsistöðvum Veitna – Klettagörðum, Ánanaustum, Akranesi, Borgarnesi, Kjalarnesi og fleiri stöðum – með mismunandi tíðni eftir starfsleyfisskyldum.

Verkefnið krefst strangra öryggis-, gæða- og verklagskrafna og tekur mið af evrópskum stöðlum og leiðbeiningum Umhverfisstofnunar.

Stuðlar að sjálfbærni og betri ákvarðanatöku

Niðurstöður sýnatöku og greininga verða skráðar í gagnagrunna Veitna og nýtast meðal annars við endurskoðun og uppfærslu starfsleyfa, við vöktun vatnsverndarsvæða og við mat á álagi á fráveitukerfin.

Faglegt teymi ReSource leiðir vinnuna

ReSource byggir á teymi sérhæfðra umhverfisverkfræðinga með mikla reynslu af sýnatökum, auk rannsóknarstofa sem framkvæma faggiltar greiningar. Með áratugalanga þekkingu á úrgangs- og fráveitumálum og reynslu af gerð rannsóknaráætlana tryggjum við faglega og áreiðanlega framkvæmd verkefnisins.