Umhverfisvöktun fyrir Veitur

ReSource tók að sér umfangsmikið umhverfisvöktunarverkefni fyrir Veitur. Verkefnið fól í sér rannsóknir og sýnatökur á viðtökum fráveitu við meginútrásir skólphreinsistöðva í Reykjavík og á Akranesi fyrir árin 2023 og 2024. Markmiðið var að meta áhrif fráveitu á strandsjó samkvæmt nýjum kröfum í Vatnaáætlun Íslands 2022–2027.

Í verkefninu var unnið samkvæmt ströngum gæðaviðmiðum sem Umhverfisstofnun og Hafrannsóknastofnun hafa mótað til að tryggja verndun lífríkis og gæða vatns. Teknar voru fjórar umferðir af sýnum til mælinga á blaðgrænu-a (svifþörungum) og ein til að mæla næringarefni (nítrat og fosfat). Að auki var framkvæmd sérhæfð botnrannsókn við útrás Sundaveitu í Reykjavík þar sem botnlægir hryggleysingjar voru greindir.

Niðurstöðurnar voru jákvæðar:

  • Blaðgræna-a mældist undir viðmiðunarmörkum sem skilgreina „mjög gott“ ástand.

  • Næringarefni, sérstaklega nítrat, voru einnig undir mörkum sem gefa til kynna lítið álag.

  • Botndýralíf í grennd við útrásina í Reykjavík gaf til kynna fjölbreytt og heilbrigt vistkerfi, samkvæmt stuðlinum NQI1.

Verkefnið er liður í innleiðingu á nýju stjórnkerfi vatnamála sem lögð hefur verið áhersla á í lögum. Með vöktun sem þessari stuðlar Veitur að því að ná umhverfismarkmiðum og tryggja sjálfbæra nýtingu vatnsauðlinda.

ReSource International bar ábyrgð á hönnun og framkvæmd verkefnisins, sýnatökum og gagnagreiningum. Hafrannsóknastofnun sá um efnagreiningar, og RORUM ehf. vann botnrannsóknir og kornastærðagreiningar. Við viljum þakka öllu samstarfsfólki, ekki síst skipstjórum, rannsóknaraðilum og tengiliðum Veitna, fyrir frábæra samvinnu.

Umhverfisvöktun frá Akraneshöfn í fallegu veðri

Starfsmenn ReSource á leið í sýnatöku

Published On: 16. 07. 2025.