Þann 20. mars síðastliðinn stóðu ReSource, Sorpa og Fenúr fyrir vel heppnaðri ráðstefnu um urðun úrgangs þar sem saman komu sérfræðingar úr opinberum stofnunum, ráðgjafarfyrirtækjum og atvinnulífi. Markmið ráðstefnunnar var að varpa ljósi á stöðu urðunar á Íslandi, nýjungar í úrgangsmálum og þær áskoranir og tækifæri sem fram undan eru.

Ráðstefnan var vel sótt og skapaðist lífleg umræða um mikilvægi þess að bæta meðhöndlun úrgangs, draga úr umhverfisáhrifum og efla hringrásarhagkerfið.

Yfirlit yfir stöðu og þróun

Dagskráin hófst með ávarpi frá Umhverfis- og orkustofnun þar sem Gestur Pétursson, forstjóri, kom inn þann árangur sem náðst hefur á síðustu árum, að vísbendingar sú um að urðunarmarkmið fyrir árið 2035 sé mögulega innan seilingar vegna bætts árangurs í flokkun.

Í framhaldinu var farið yfir tölfræði urðunar á Íslandi síðustu ár og kynntar nýjungar í skráningu á magni og meðhöndlun úrgangs. Rakel Sigurveig Kristjánsdóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis, fór yfir helstu breytingar og þróun á þessu sviði.

Mengun, loftslag og nýjar lausnir

Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, umhverfis- og jarðefnafræðingur hjá Verkís / Fumís, fjallaði um hreinsun á menguðum jarðvegi og mikilvægi réttrar meðhöndlunar viðkvæmra svæða.

Inga Rún Helgudóttir, sérfræðingur á sviði loftslagsmála hjá Umhverfis- og orkustofnun, fór yfir losun vegna urðunar úrgangs á Íslandi og áhrif hennar á loftslag.

Áhersla á nýtingu og vöktun

Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarsérfræðingur hjá Environice, fjallaði um auðlindanýtingu við lokun urðunarstaða, meðal annars með dæmum frá Álfsnesi.

Nicolas Proietti, umhverfisverkfræðingur hjá ReSource International, kynnti aðferðir við vöktun og mælingar á útblæstri frá urðunarstöðum, en slíkar mælingar eru lykilatriði í að fylgjast með og draga úr losun.

Þorleifur Þorbjörnsson frá Sorpu fjallaði um hreinsun og nýtingu urðunargass og hvernig hægt er að umbreyta því í verðmæta auðlind.

Umræður og lokaorð

Í lok ráðstefnunnar fóru fram pallborðsumræður þar sem helstu atriði dagsins voru dregin saman og rætt um næstu skref í þróun úrgangsmála á Íslandi.

Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Sorpu, flutti lokaorð og lagði áherslu á mikilvægi áframhaldandi samstarfs og nýsköpunar í málaflokknum.

Mikilvægt skref fram á við

Ráðstefnan sýndi skýrt að mikill vilji er til staðar til að bæta úrgangsstjórnun á Íslandi. Með samstilltu átaki og aukinni þekkingu er hægt að draga úr urðun, minnka umhverfisáhrif og stuðla að sjálfbærari nýtingu auðlinda.