ReSource hefur lokið gerð lífsferilsgreiningar (LCA) og þróun umhverfisyfirlýsingar (EPD) fyrir byggingarsamþættar sólarrafhlöðueiningar frá Megasol
Umhverfisyfirlýsingin hefur nú verið staðfest af óháðum sannprófanda og birt í alþjóðlega EPD-gagnagrunninum hjá EPD International.
Umhverfisyfirlýsing (EPD) er staðlað og sannprófað skjal sem veitir gagnsæjar upplýsingar um umhverfisáhrif vöru yfir allan lífsferil hennar – allt frá öflun hráefna og framleiðslu til notkunar og endurvinnslu eða förgunar. EPD auðveldar framleiðendum, hönnuðum og verkkaupum að bera saman vörur á traustum grunni og styður við upplýstar ákvarðanir um sjálfbærni í mannvirkjagerð.
Megasol LEVEL er byggingarsamþætt sólarrafhlöðueining sem sameinar hlutverk þakefnis og raforkuframleiðslu í einni lausn. Við gerð EPD framkvæmdi ReSource ítarlega lífsferilsgreiningu í samræmi við alþjóðlega staðla og vöruflokkareglur (PCR) sem gilda um sólarrafhlöðueiningar. Niðurstöðurnar voru síðan sannprófaðar af óháðum aðila áður en umhverfisyfirlýsingin var birt.
Verkefnið endurspeglar sérþekkingu ReSource á lífsferilsgreiningum (LCA), umhverfisyfirlýsingum (EPD) og sjálfbærnimati fyrir framleiðslufyrirtæki. Með vaxandi kröfum um gagnsæi í upplýsingagjöf um umhverfisáhrif verða EPD-skjöl sífellt mikilvægari fyrir fyrirtæki sem vilja sýna fram á árangur sinn á sviði sjálfbærni og uppfylla kröfur markaðarins.
Við óskum samstarfsaðilum okkar hjá Megasol til hamingju með útgáfu EPD-innar og þökkum fyrir ánægjulegt samstarf við þetta mikilvæga verkefni.
EPD-skýrsluna má nálgast hér: EPD Library hjá EPD International.
