ReSource International hefur hafið vinnu við eitt umfangsmesta umhverfisverkefni fyrirtækisins til þessa en það verkefni snýr að sýnatökum og greiningum í fráveitu fyrir Veitur ohf.
Verkefnið markar mikilvægt skref í að efla vöktun, gagnasöfnun og vísindalega greiningu á fráveitu á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum.
Samkvæmt útboðsgögnum Veitna felur samningurinn í sér reglubundna sýnatöku og greiningu á:
-
Frárennslisvatni fyrir og eftir hreinsun
-
Örverum í viðtökum (sjó- og ferskvatn)
-
Ólífrænum snefilefnum
-
Yfirborðsvirkum efnum, olíu og fitu
-
Örmengunarvöldum (Flokkur I og II samkvæmt nýrri Evróputilskipun)
Sýnataka á fráveitu fer fram á öllum helstu hreinsistöðvum Veitna – Klettagörðum, Ánanaustum, Akranesi, Borgarnesi, Kjalarnesi og fleiri stöðum – með mismunandi tíðni eftir starfsleyfisskyldum.
Verkefnið krefst strangra öryggis-, gæða- og verklagskrafna og tekur mið af evrópskum stöðlum og leiðbeiningum Umhverfisstofnunar.
Stuðlar að sjálfbærni og betri ákvarðanatöku
Niðurstöður sýnatöku og greininga verða skráðar í gagnagrunna Veitna og nýtast meðal annars við endurskoðun og uppfærslu starfsleyfa, við vöktun vatnsverndarsvæða og við mat á álagi á fráveitukerfin.
Faglegt teymi ReSource leiðir vinnuna
ReSource byggir á teymi sérhæfðra umhverfisverkfræðinga með mikla reynslu af sýnatökum, auk rannsóknarstofa sem framkvæma faggiltar greiningar. Með áratugalanga þekkingu á úrgangs- og fráveitumálum og reynslu af gerð rannsóknaráætlana tryggjum við faglega og áreiðanlega framkvæmd verkefnisins.
