ReSource International vinnur með First Water að spennandi þróunarverkefni sem miðar að því að skapa verðmæti úr lífrænum aukaafurðum frá fiskeldi og landbúnaði.
Verkefnið er hluti af Terraforming LIFE, sem nýtur styrks frá LIFE-áætlun Evrópusambandsins.
Markmið verkefnisins er meðal annars að þróa sjálfbærar leiðir til að nýta lífrænt efni, svo sem fiskeldismykju, dauðfisk og búfjáráburð, til framleiðslu á lífgasi og lífrænum áburði með loftfirrðu niðurbroti. Þannig er leitast við að breyta efni sem annars getur verið kostnaðarsamt eða erfitt í meðhöndlun í endurnýjanlega orku og verðmæta næringu fyrir landbúnað.
Fýsileiki rannsóknaraðstöðu kannaður
Hlutverk ReSource hefur meðal annars falist í að vinna ítarlega fýsileikagreiningu fyrir rannsóknaraðstöðu á Íslandi þar sem hægt væri að rannsaka og prófa möguleika mismunandi lífrænna hráefna til lífgas- og áburðarframleiðslu.
Verkefninu var skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum voru meðal annars skilgreindar hentugar greiningaraðferðir, tilraunaáætlun og verklag við sýnatöku og undirbúning sýna. Þar var sérstaklega horft til mælinga á lífmetanframleiðslu (BMP), eiginleikum hráefna, gæðum meltuefnis og vöktunar á sjálfu gerjunarferlinu.
Í seinni áfanganum var hugmyndin þróuð áfram í heildstæða áætlun fyrir uppbyggingu og rekstur rannsóknaraðstöðunnar. Þar var meðal annars unnið að hönnun rannsóknarrýmis, vali á búnaði, mannafla- og hæfnisþörf, verklagsreglum, kostnaðarmati, tilraunaáætlun og áhættugreiningu.
Frá úrgangi yfir í auðlind
Verkefnið fellur vel að áherslum ReSource um hringrásarhagkerfi og betri nýtingu auðlinda. Fiskeldi og landbúnaður skapa umtalsvert magn lífrænna aukaafurða og með réttri tækni geta falist í þeim verðmæti sem hráefni til orku- og áburðarframleiðslu.
Niðurstöður fýsileikagreiningarinnar benda til þess að uppbygging slíkrar rannsóknaraðstöðu sé tæknilega framkvæmanleg og geti skapað mikilvægan grundvöll fyrir frekari þróun lausna á þessu sviði á Íslandi.
Með verkefninu leggur ReSource til sérþekkingu á lífgasi, umhverfisvöktun, rannsóknaraðferðum og nýtingu lífrænna efna. Samstarfið við First Water og aðra samstarfsaðila Terraforming LIFE er jafnframt mikilvægt skref í átt að því að finna raunhæfar og sjálfbærar lausnir fyrir lífrænar aukaafurðir hér á landi.
Verkefnið Terraforming LIFE er styrkt af LIFE-áætlun Evrópusambandsins.

BMP-búnaður til mælinga á lífgas- og metanframleiðslu. Mynd: BPC Instruments AB.