ReSource fagnar því framtaki hjá Veitum að leggja meiri áherslu á umhverfismál þegar valdir eru verktakar á vegum fyrirtækisins.  Veitur munu setja aukin skilyrði í útboðslýsingar í þeim tilgangi að fá verktaka til að huga frekar að umhverfismálum og aðgerðum til að minnka kolefnisspor.  Umhverfisþættir sem leiða af sér minna kolefnisspor framkvæmda geta vegið allt að 20% þegar tilboð eru metin.  Í útboðum Veitna fá verktakar stig fyrir ákveðna umhverfisþætti sem skilgreindir eru fyrir hvert verkefni.  Markmiðið með þessu er að fækka kolefnissporum á vegum Veitna og um leið verktaka á þeirra vegum.   Veitur hafa sett það markmið í umhverfisstefnu fyritækisins að fyrirtækið verði kolefnishlutlaust árið 2030.   

Hér má sjá frétt um þetta á heimasíðu Veitna:  Veitur meta lægra kolefnisspor verktaka í útboðum  

 ReSource hefur mikla reynslu í að reikna út kolefnisspor fyrirtækja og veitir fyrirtækjum ráðgjöf í að halda utan um sína losun og draga úr þeirra sótspori.