Lilja Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin sölu- og markaðsstjóri ReSource International á Íslandi.  Lilja hefur starfað  sl. 15 ár hjá Terra Umhverfisþjónustu sem rekstrarstjóri á Vesturlandi, hún er heilbrigðisgagnafræðingur að mennt með diplóma í sölu-, markaðs- og rekstrarnámi auk þess sem hún hefur sótt rekstrarnámskeið við Háskólann á Bifröst.

Við bjóðum Lilju velkomna til starfa hjá ReSource International.